Fara í efni

Heimalagaður réttur sem börnin elska.

Litlir kjötbúðingar....með heimalgaðri sósu sem gerði trikkið Gufusoðnar gulrætur og Heilhveiti spagetti.
Þetta kom sannarlega á óvart.
Þetta kom sannarlega á óvart.

Kvöldmaturinn.

Hreint út sagt sjúklega gott og mér var hótað á heimilinu.....að ef ég gerði þetta ekki fljótt aftur "sko"  

Litlir kjötbúðingar....með heimalgaðri sósu sem gerði trikkið :)
Gufusoðnar gulrætur og Heilhveiti spagetti.....bara 30gr á minn disk.

Þetta kom mér meira að segja sannarlega á óvart ....því einhvernvegin eru kryddjurtirnar að gera mikið trikk :)

Litlir kjötbúðingar í silikon formi.

Innihald.

500gr. Hreint Nautahakk.
1/2 Rauð paprika
1/2 Rauðlaukur
1 rifin gulrót
steinselja fersk kúfaður lófi 
3 msk. Kotasæla
1 dl. Eggjahvítur
Átti tvo mais soðna í ísskápnum og skar baunirnar af og notaði í blönduna.
Krydd eftir smekk.
Ég notðai chillisalt-pipar-creola krydd.

aðferð.

Skera grænmetið smátt.
Rífa gulrótina.
Setja allt í hrærivélaskál og hnoða saman.
setja svo blönduna í silikon form og baka.
Ég er með ofn án blásturs....og bakaði í 25min.

Sósan.

1 dós sykurlausir tómatar
1 1/2 dl. vatn
1 Rauð paprika
1/2 Rauðlaukur
3 rif hvítlaukur
Fersk Basilika fullur lófi 
1/4 rautt langt chilli
1 tsk. grænmetiskraftur frá Himneskri hollustu.´
2 msk. Létt papriku ostur
Salt og pipar.

Allt í blandarann nema osturinn.
Vinna í silkimjúka blöndu.
Síðan beint í pott og sjóða upp.
Bæta þá ostinum við og sjóða saman.

Alveg hreint frábær matur sem er mjög barnvænt.
Fullt af grænmeti en engin pikkaði neitt úr :)