Lýður B. Skarphéðinsson
Ég er Hafnfirðingur, hálfgert íþrótta- og skónörd
Ég er íþróttakennari frá Laugarvatni, Sérfræðingur í Footbalance innleggjum, lærði göngu- og hlaupagreiningar hjá Gísla Ferdinandssyni í kringum 2000 og hef þvælst um allan heim á fyrirlestra, námskeið og sýningar, allt tengt, göngugreiningum, skóm og fótum.
Næstum alæta á íþróttir en fótbolti er í mestu uppáhaldi. Ég á þrjá stráka sem spila fótbolta með FH, Val og Álftanesi svo það er mikið rætt um knattspyrnu í fjölskyldunni.
Ég spilaði sjálfur handbolta og körfubolta til 17 ára aldurs og fótbolta með Haukum, Einherja og Tindastóli, var líka lengi að þjálfa knattspyrnufólk á öllum aldri.
Ég er framkvæmdastjóri Eins Og Fætur Toga og sérfræðingur í göngu- og hlaupagreiningum.
Ég var með heilsurækt á Sauðárkróki og var þar að selja hlaupaskó. Ég sá að með því að kynna mér allt um skóna myndi ég einfaldlega selja fleiri skópör. Kolbeinn Gíslason frá Gísla Ferdinandssyni kom norður og var með göngugreiningar hjá mér í ræktinni, Kolbeini vantaði mann sem vissi eitthvað um skó og plataði mig til að koma suður og gerast verslunarstjóri í nýrri hlaupaverslun í Kringlunni. Í versluninni í Kringlunni var hlaupabretti og upptökuvél sem var notað til að velja réttan skóbúnað, eftir að hafa skoðað á fætur í heilt ár í versluninni lærði ég göngu- og greiningar af Kolbeini. Fljótlega fór ég um allt land með göngugreiningar og hef gert það síðan.
Íslendingar eru þannig gerðir að þegar kemur að skóm þá velja þeir vandaða skó. Breytingin sem svo hefur orðið er að fólk er miklu meðvitaðra um hvað skór eru misjafnir og fólk veit að það getur fengið aðstoð hjá okkur við að velja skó eftir fótlagi og niðurstigi. Þeir sem koma í greiningu fá upplýsingar um skóbúnað sem hentar frá öllum helstu framleiðendum.
Við erum ennþá að tala um hvort skórnir eigi að vera styrktir eða ekki, það sem hefur breyst er að við erum líka farin að tala um höggdempun og fjöðrun og svo hefur utanvega hlaupurum fjölgað mikið. Það sem skiptir líka miklu máli er að byrjendur hafa aðrar þarfir en þeir sem eru vanir. Þungir þurfa aðra skó en þeir sem eru léttir, þeir sem hlaupa langt þurfa annarskonar skó en þeir sem hlaupa stutt o.sv. frv. Þess vegna þurfum við þó nokkuð af upplýsingum áður en við getum valið skó sem hentar hverjum og einum.
Það er mikilvægur þáttur í starfseminni að hækka undir annan fótinn. Mælingin er mikilvæg og þarf að skoða vel hvar mislengdin liggur. Okkur hefur tekist að hjálpa ótrúlegum fjölda fólks til betra lífs með innleggjum og vali á skóbúnaði fyrir vinnu og frístundir. Við tökum í kringum 5.000 manns í göngugreiningu á ári og búum til 3.000 innlegg.
Við vorum mest að tala við fólk um að velja skóbúnað sem hentar, einnig hvað sokkarnir skipta miklu máli. Við ræddum einnig við fólk um þrýstifatnað og þrýstivörur (Compression) og einnig vörur fyrir endurheimt líkamans (Recovery).
Þegar ég las Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxnes í FG var ég með Gísla íslenskukennara sem gat komið okkur til að sjá nýjar víddir í bókmenntum og bókin hafði þónokkur áhrif á mig. Undanfarin ár hef ég lesið gríðarlegt magn af bæklingum, greinum og bókum tengt vinnuni og verð að viðurkenna að égt hef ekki lesið mikið annað undanfarin 15 ár.
Ostur er alltaf til, skinka og......hmmm Pepsi Max
Lambahryggur með öllu.
Mitt „trít“ er að spila golf erlendis í góðra vina hópi. Fer í World Class í Laugum, tek góðan pott eftir æfinguna og fæ mér eitthvað gott að borða á eftir ef ég þarf að endurnýja orkuna.
Fresta þeim eins lengi og ég get en þegar ég neyðist til að byrja geri ég það yfirleitt af fullum krafti og stoppa helst ekki fyrr en ég er búinn.
Fagmennska og góður rekstur geri það að verkum að við séum fyrirtækið sem kemur fyrst upp í hugann þegar kemur að göngugreiningum, öllu sem tengist hlaupum, þrýstivörum og vörum fyrir endurheimt eftir erfiði.