Fara í efni

Smjördeigssnúðar með sultuðum rauðlauk og fetaosti frá Eldhúsperlum

Dásamleg uppskrift frá henni Helenu eiganda Eldhúsperla.
Smjördeigssnúðar með sultuðum rauðlauk og fetaosti frá Eldhúsperlum

Það er svo ótrúlega einfalt og ljúffengt að búa til góðgæti úr smjördeigi og svei mér þá ef allt er ekki aðeins betra með þessu dásamleg deigi.

Ég hef ekki tölu á hversu oft ég hef búið til skinkusnúða úr smjördeigi og að öðrum skinkusnúðum ólöstuðum þá eru smjördeigssnúðarnir feykilega vinsælir og klárast yfirleitt á ljóshraða.

Þessir snúðar sem ég gef uppskrift að hér eru hættulega góðir og alveg fullkominn biti til að bjóða upp á t.d á smáréttaborði, með fordrykk eða góðum ísköldum jólabjór.

Með því að steikja laukinn lengi við vægan hita verður hann sætur og góður, balsamikedikið skellir honum svo upp á aðeins hærra plan og svo smellpassar þetta við saltan og rjómakenndan fetaostinn. Hlutföllin sem ég gef eru alls ekki heilög og um að gera að smakka sig áfram ef þið viljið meira ediksbragð til dæmis.

Smjördeigssnúðar með sultuðum rauðlauk og fetaosti:

  • 2 pakkar frosið smjördeig, t.d Findus
  • Dijon Sinnep
  • 4-6 rauðlaukar (fer eftir stærð)
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 1 msk smátt saxað ferskt timian eða 1 tsk þurrkað
  • 2 msk smjör
  • Sjávarsalt og nýmalaður pipar
  • 3 msk balsamikedik (eða meira eftir smekk)
  • fetakubbur

Aðferð:

Skerið laukinn í þunnar sneiðar, saxið hvítlaukinn smátt og saxið timían.

Hitið pönnu yfir meðalhita og bræðið smjörið. Bætið lauknum á pönnuna ásamt timían, saltið og piprið og steikið þar til laukurinn er orðinn vel mjúkur og hefur minnkað um ca. helming.Getur tekið um 20 mínútur.

Bætið þá balsamikediki á pönnuna og blandið vel saman við laukinn. Leyfið edikinu að sjóða niður í 5 mínútur, gæti þurft að hækka aðeins hitann. Smakkið til með salti, pipar og ediki. 

Takið af hitanum og kælið aðeins þar til laukurinn er stofuheitur. Hitið ofninn á meðan í 180 gráður með blæstri annars 200 gráður. Takið smjördeigið úr öðrum pakkanum og leggið plöturnar saman þannig að þær skarist aðeins.

Fletjið þær út á hveitistráðu borði. Smyrjið þunnu lagi af dijon sinnepi á smjördeigið, dreifið helmingnum af lauknum jafnt yfir og myljið helminginn af fetakubbnum yfir.

Rúllið upp og skerið í ca. 1,5 cm þykkar sneiðar. Leggið á bökunarpappírsklædda ofnplötu og bakið þar til gullinbrúnir og eldaðir í gegn, 12-14 mínútur.

Kælið snúðana á grind og berið fram stofuheita.

Ef snúðana á að frysta er ekkert mál að skella þeim í 180 gráðu heitan ofn í 5-10 mínútur og þá verða þeir eins og nýjir aftur.

Uppskrift af vef eldhusperlur.com