Fara í efni

Poppaðar Amaranth nammi kúlur

Ama hvað ? Hvað sagðirðu eiginlega ? Amaranth….. það reka flestir upp stór augu og vita ekkert um hvað ég er að tala, enda hefur Amaranth selst afskaplega lítið síðustu ár hér á landi.
Poppaðar Amaranth nammi kúlur

Ama hvað ? Hvað sagðirðu eiginlega ?  Amaranth….. það reka flestir upp stór augu og vita ekkert um hvað ég er að tala, enda hefur Amaranth selst afskaplega lítið síðustu ár hér á landi.  

En í sumar kynnti hún Margrét Leifs vinkona mín mig fyrir poppuðu Amaranthi og við bjuggum til nammikúlur sem við vorum með á matreiðslunámskeiði í haust.  

Á namminámskeiðunum núna í nóvember og desember hafa svo verið búnar til poppaðar amaranth nammi kúlur við mjög góðar undirtektir.

Það er talað um Amaranth sem korntegund en í raun er hún fræ eins og kínóa.  Amaranthið er mjög næringarríkt og inniheldur til dæmis mikið af próteinum, steinefnum og vítamínum.

En það er ekki bara næringarinnihaldið sem gerir þessar kúlur spennandi, heldur er það líka áferðin.  Þessar kúlur eru svo ólíkar öllum öðrum kúlum, þessum týpísku kókos/hnetukúlum sem flestir þekkja.  Þær standa auðvitað alltaf fyrir sínu en það er samt svo gaman að kynnast einhverju alveg nýju.

Hér kemur uppskrift af súkkulaði útgáfunni

Hráefni:

  • 2,5 dl poppað amaranth
  • 8 vænar msk kasjúsmjör (Ég var með H-Berg)
  • 1-2 vænar msk hunang
  • 1 dl kurlaðar döðlur og fíkjur. (hægt að kurla í blandara eða saxa mjög smátt með hníf)
  • 2 msk kakó
  • örlítið sjávarsalt
  • ½ tsk hreint vanilluduft

Aðferð:

  1. Blandið öllu í eina skál, hnoðið saman og búið til kúlur.
  2. Frystið í 10 mín. og þá er nammið tilbúið.
  3. Gott að eiga í frysti og fá sér eina kúlu þegar nammiþörfin gerir vart við sig.

Amaranth fæst bæði ópoppað og tilbúið poppað í Lifandi Markaði. 

Á síðasta námskeiði gerðum við tilraun og bættum við nokkrum dropum af karamelludropum út í deigið áður en vi mótuðum kúlurnar.  Það var hriiiiiikalega gott og ég hlakka svo til að endurtaka leikinn núna um helgina og búa til karamellukúlur handa ungunum mínum,  veit að það mun svo sannarlega slá í gegn.

 

Og svo er hægt að færa þessar kúlur alveg upp á næsta stig með því að dýfa þeim í bráðið dökkt súkkulaði eftir að búið er að kæla þær.

 

Ef þið viljið poppa Amaranthið sjálf, koma hér leiðbeiningar: 

Hitið pönnu (eða pott) þannig að hún sé vel heit. Setjið 1 msk af korni á pönnuna.

Kornið byrjar fljótlega að poppast en um leið og það hættir hellið þið af pönnunni yfir í skál. Þessi aðgerð tekur aðeins nokkrar sekúndur. Kornið má alls ekki vera of lengi á pönnunni því þá byrjar það að brenna og kemur rammt bragð af því. Þið gætuð þurft að minnka hitann ef kornið vill brenna.

Takið svo aftur 1 msk og setjið á pönnuna, svo koll af kolli…. 

Ég skora á ykkur að prófa að búa til þessar skemmtilegu, bragðgóðu og næringarríku nammi kúlur til að eiga í bakhöndinni þegar sætuþörfin gerir vart við sig í annríkinu. Svo væri nú gaman að heyra hvernig smakkaðist.

Þessi uppskrift ásamt fleirum er að finna í nýju nammi bókinni „Sætindi sem næra, hressa og bæta“  sem fæst á hópkaup þessa dagana: https://www.hopkaup.is/heilsamamman-saelgaeti

Nammi namm …

Snilldar uppskrift frá Heilsumömmunni