Fara í efni

Mjúkir hafrabitar með súkkulaði - Við kynnum nýjan samstarfsaðila - Vilborg.is

vilborg.is er glæný vefsíða hennar Vilborgar Örnu útivistargarps. Þessir bitar eru vinsælir á mínu heimili bæði sem millibiti og þegar kemur að ferðalögum. Þeir eru hollir og stútfullir af góðum næringarefnum.
Mjúkir hafrabitar með súkkulaði - Við kynnum nýjan samstarfsaðila - Vilborg.is

Þessir bitar eru vinsælir á mínu heimili bæði sem millibiti og þegar kemur að ferðalögum.

Þeir eru  hollir og stútfullir af góðum næringarefnum.

Ég vel að gera hana án viðbætts sykurs og kaupi slíkt súkkulaði í Krónunni frá Balance.

Helsti kostuirnn við þessa bita er að þeir eru léttir en gefa manni jafnframt orku.

 

Uppskrift:

3 dl – Tröllahafrar
2 mjúkir bananar
1 stk egg 
50 – gr hakkaðar heslihnetur
1/2 dl rúsínur
1/2 dl sorin þurrkuð epli
sykurlaus súkkulaðiplata

Stappið eða mixið banana og blandið þurrefnunum saman ásamt egginu sem bindur þetta allt saman.

Mótið fallega bita og toppið með kókosflögum.

Bakið á 180° með blæstri í 17-20 mín. Það er betra að hafa álpappír yfir 2/3 af tímanum til þess að brenna ekki kókosinn.

Af síðu vilborg.is