Fara í efni

Léttur mangó chutney kjúklingur með möndluflögum og sætum kartöflum - Eldhúsperlur

Ég hef sótt mikið í léttar og bragðmiklar uppskriftir undanfarið.
Kjúklingur,möndlur og sætar kartöflur
Kjúklingur,möndlur og sætar kartöflur

Á stuttum og annasömum dögum eins og núna síðustu dagana fyrir jól gefst lítill tími til eldamennsku. Það er þó þannig að þegar það er mikið að gera og allir frekar uppteknir er svo notalegt að setjast niður og borða kvöldmat, sem þarf bara alls ekki að vera svo flókið. Ég hef sótt mikið í léttar og bragðmiklar uppskriftir undanfarið. Eldaði til dæmis þessa tælensku kjúklingasúpu í gær og maður minn, hvað hún var góð. Einmitt það sem við þurftum á þessu dimma mánudagskvöldi. Um helgina eldaði ég svo þennan létta og bragðgóða mangó chutney kjúklingarétt. Ég mæli með að nota gott mangó chutney í réttinn. Geeta´s premium Mango chutney er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og fæst t.d í Hagkaup. Það er vel kryddað og ekki of sætt. Ég hef einnig rekist á svipað chutney í öðrum verslunum, svo um að gera að prófa sig áfram.

Léttur mangó chutney kjúklingur með möndluflögum og sætum kartöflum (fyrir 3-4):

  • 4 kjúklingabringur
  • 1/2-1 sæt kartafla (fer eftir stærð)
  • 1 pressað hvítlauksrif
  • 1 tsk rifið engifer
  • 4-5 vænar msk mangó chutney (eða meira eftir smekk)
  • 1,5 dl vatn
  • 1 tsk kjúklingakraftur eða 1/2 mulinn kjúklingateningur
  • Handfylli af möndluflögum

Aðferð: Hitið ofn í 170 gráður með blæstri. Skerið sætu kartöfluna í þunnar sneiðar og leggið í botninn á eldföstu móti. Leggið kjúklingabringurnar ofan á. Hrærið saman hvítlauk, engifer, mangó chutney, vatni og kjúklingakrafti og hellið yfir kjúklinginn. Bakið í 25 mínútur. Takið þá út og dreifið möndluflögunum yfir og bakið áfram í 5 mínútur. Berið fram með fersku salati og brosi á vör!

Birt í samstarfi við: