Fara í efni

Ristaðar sætar kartöflur – þrennskonar álegg

Meiriháttar gott og svo hollt að rista í staðinn fyrir brauð. Það er alveg í lagi að breyta til líka.
Ristaðar sætar kartöflur – þrennskonar álegg

Meiriháttar gott og svo hollt að rista í staðinn fyrir brauð. Það er alveg í lagi að breyta til líka.

Sætar kartöflur eru miklu hollari en brauð. Þær eru fullar af vítamínum og steinefnum og eru mjög góðar fyrir húðina sem dæmi.

 

 

 

 

 

 

 

 

Hráefni:

Eina stóra sæta kartöflu

Möndlusmjör – sjá hér

Banana í sneiðum

Kanil

Avókadó

Salt og pipar

Sítrónubörk

Túnfisk

Heimagert majó  - sjá hér

Rauðlauk

Relish – sjá hér

 

Leiðbeiningar:

Fyrir ristaðar sætar kartöflur

Skerðu kartöfluna langsöm í hæfinlega þykkar sneiðar. Settu sneiðar í brauðristina á háan hita. Passið bara að brenna ekki sneiðarnar. Þær eiga að vera örlítið brúnar á hliðunum.

Avókadó-áleggið:

Takið avókadó úr hýðinu og skerið í sneiðar. Bætið þessu á ristuðu kartöflusneiðina og stráið yfir salti, pipar og rifnum sítrónuberki.

Með möndlusmjöri:

Smyrjið kartöflusneiðina með möndlusmjörinu og raðið svo bananasneiðunum ofan á og stráið kanil yfir allt saman.

Með túnfisknum:

Ein msk af majóinu, ein msk af relish og 1 msk af rauðlauk sem búið er að saxa. Notið svo eina litla dós af túnfisk.

Setjið fyrst majó og relish, svo rauðlaukinn og hafið þetta jafnt yfir alla kartöflusneiðina, setjið svo túnfiskinn efst. Notast er við litla dós af túnfisk í vatni.

Njótið svo vel!