Fara í efni

Jóladesert í hollari kantinum.

Hollt og gott á jólum er líka málið. Svo gott að bjóða upp á ferska ávext.
Ferskt og gott.
Ferskt og gott.

Jólin eru að fara skella á og margir sem kvíða þeirri hátið.
Það eru ekki allir sem ráða við mataræðið sitt á jólum.
En jólin eru til að njóta <3

Hér er desert sem kætir líkama og sál.
Og allt í lagi að borða hollt og gott með á jólum.
Börnin eru sjúk í þennan desert :)

Í þessari skál er:

Avacado súkkulaði búðingur.

1 meðal stór avocado eða 2 lítil ( hafa vel þroskuð )
0,4 dl agave sýróp
2-4 msk hreint kakó
1-2 msk fljótandi kókosolía
1 tsk vanilluduft ( Rapunzel) eða dropar
Örlítið salt...nokkur korn
Fjörmjólk eftir smekk.
Fer eftir hvað maður vill hafa búðinginn þykkan.

Aðferð:

Allt sett í matvinnsluvél og unnið saman í silkimjúkan búðing.

Þá fá sér búðing og nóg af ferskum ávöxtum.
Tildæmis jarðaberjum, kívi og rifsberjum.
Grísk jógúrt er sjúklega góð með svona desert.

Njótum jóla <3