Fara í efni

Blómkals-, spergilkáls- og hvítkálsgratín

Ljúffengur réttur sem meðlæti eða bara einn og sér.
Blómkals-, spergilkáls- og hvítkálsgratín

Ljúffengur réttur sem meðlæti eða bara einn og sér.

 

Hráefni:

800 g blómkál
300 g spergilkál
300 g hvítkál
salt
50 g smjör
3 msk hveiti
300 ml mjólk
1 msk ferskt timjan, saxað (eða 1 tsk þurrkað)
hvítur pipar
1 ostarúlla með hvítlauk og steinselju frá Ostahúsinu


Leiðbeiningar: 

Ofninn hitaður í 180°C Blómkál og spergilkál tekið sundur í stóra kvisti og stönglarnir skornir í sneiðar. Hvítkálið skorið í ræmur eða bita. Saltvatn hitað í stórum potti og kálið soðið í 5-8 mínútur, eða þar til það er tæplega meyrt – best er að setja kálstönglasneiðarnar í pottinn fyrst og láta þær sjóða ögn lengur en hitt.

Á meðan er smjörið brætt í öðrum potti, hveitinu hrært saman við og síðan er mjólkinni hrært saman við smátt og smátt og sósan bökuð upp. Kryddað með timjani, pipar og salti og látið malla í nokkrar mínútur. Vatninu hellt af kálinu og það sett í eldfast fat. Ostarúllan skorin í bita, sett út í sósuna og hrært þar til osturinn er bráðinn.

Sósan á að vera þykk en ef hún er of þykk má þynna hana ögn með mjólk.

Hellt jafnt yfir kálið. Sett í ofninn og bakað í 25-30 mínútur, eða þar til gratínið er gullinbrúnt.

Höfundur uppskriftar:
Nanna Rögnvaldardóttir

 

Uppskrift af vef islenskt.is