Fara í efni

Frábær uppskrift af ískaffi

Hérna er frábær og einföld uppskrift af fersku og ísköldu ískaffi.
Svalandi ískaffi
Svalandi ískaffi

Hérna er frábær og einföld uppskrift af fersku og ísköldu ískaffi.

Þessi uppskrift er fyrir einn drykk en það er auðvelt að stækka hana.

Á heitum sumardögum þegar kaffilöngunin kemur yfir þig þá er nú betra að drekka hressandi kalt ískaffi heldur en heitan bolla, ekki satt?

Hráefni:

1 bolli af klökum

1 bolli af kaffi, má vera volgt eða kælt

2 msk af mjólk eða kaffirjóma

1 til 2 tsk af hrásykri – fer eftir smekk

Leiðbeiningar:

Fylltu stórt glas af ísmolum. Helltu kaffinu yfir og bættu mjólkinni eða kaffirjóma saman við og sykri eftir smekk. Það er líka rosalega gott að nota möndlumjólk og hráhunang.

Hrærið, drekkið og Njótið~

Ps: Það má líka nota undanrennu og stevia í staðinn fyrir mjólk og sykur.