Fara í efni

Mangó-rita tropical grænn – góður við timburmönnum

Þessi græni bragðast afbragðs vel og einnig er hann stútfullur af næringarefnum sem líkami okkar elskar.
Mangó-rita tropical grænn – góður við timburmönnum

Þessi græni bragðast afbragðs vel og einnig er hann stútfullur af næringarefnum sem líkami okkar elskar.

Þessi blanda af tropical ávöxtum er pökkuð af C-vítamíni og kókósvatnið er afar gott til að halda vökvatapi í lágmarki. Einnig er kókósvatn afar gott ef þú finnur fyrir timburmönnum.

 

 

 

 

Hráefni:

2 bollar af fersku spínati

1 bolli af kókósvatni- ósætu

1 bolli af appelsínu, án hýðis

2 bollar af mangó – frosið

1 bolli af ananas – frosið

Safi úr ½ lime og nota má lime sneið til skreytingar

Einnig ef þú vilt þá má skreyta glasið með salti

Leiðbeiningar:

  1. Settu spínat, appelsínu og kókósvatn í blandarann og láttu hrærast vel saman.
  2. Bættu núna mangó og lime safa saman við og hrærðu þessu vel saman.
  3. Ef þú vilt þá má setja lime safa á brúnir á glasi og skreyta með salti.

Njótið vel!

Ps: notið frosna ávexti til að hafa drykkinn kaldan.