Fara í efni

Súkkulaði banana smoothie

Áttu banana sem liggja undir skemmdum eða banana sem þú hefur fryst ?
Súkkulaði banana smoothie

Áttu banana sem liggja undir skemmdum eða banana sem þú hefur fryst ?

Ef svo er þá skaltu endilega prufa að búa til þennan dásamlega súkkulaði banana smoothie.

Það er frábært að byrja daginn á þessum hollustudrykk. Mundu bara að nota 100% kakóduft því það inniheldur mikið af góðum efnum sem líkamanum líkar afar vel við.

Húðin verður fallegri því 100% kakóduft inniheldur andoxunarefni, Flavonoids í kakó getur einnig stöðvað niðurgang ef sú pest er í gangi.

 

 

Hráefni:

230 ml af kókósmjólk

1 msk af hunangi – helst hrá hunangi

2 frosnir banana

1 msk af kakódufti 100%

Leiðbeiningar:

Blandið öllum hráefnum saman í blandara og látið hrærast þar til drykkur er mjúkur.

Berið fram strax og njótið vel!