Fara í efni

Grænn með eplum og berjum - yummy

Epli og ber bragðast afar vel saman.
Grænn með eplum og berjum - yummy

Epli og ber bragðast afar vel saman.

Bætum við bláberjum og drykkurinn er stútfullur af andoxunarefnum.

Í þessum drykk má finna 49% af þeim trefjum sem þú þarft daglega.

Uppskrift er fyrir einn. 

 

 

 

 

Hráefni:

1 bolli af bláberjum – frosin eða fersk

1 stórt epli – án hýðis og steina

2 bollar af spínat

10 meðal stór jarðaber – fersk eða frosin

Möndlumjólk eftir smekk – eða mjólk að eigin vali

Leiðbeiningar:

  1. Byrjaðu á því að setja vökvann í blandarann ásamt mjúku ávöxtunum.
  2. Bættu nú þessum grænu saman við og láttu blandast á háum hraða þar til drykkur er mjúkur.

Ef þú vilt hafa hann kaldann þá mælum við með að frysta ferska ávexti til að nota í svona drykki.

Njótið vel!