Fara í efni

5 hlutir til að gera daglega svo þú lifir lengur

Og það besta við þessa 5 hluti er að þú ert örugglega að gera suma af þeim daglega. Svo það ætti ekki að vera neitt mál að bæta restinni við.
5 hlutir til að gera daglega svo þú lifir lengur

Og það besta við þessa 5 hluti er að þú ert örugglega að gera suma af þeim daglega. Svo það ætti ekki að vera neitt mál að bæta restinni við.

Að breyta þínu daglega munstri til hins betra er alltaf gott. Og ef þessar breytingar lengja lífið þá er það bara enn betra.

Hér fyrir neðan eru fimm hlutir sem mælt er með að gera daglega fyrir lengra og heilbrigðara líf.

Drekktu kaffi

Kaffi er víst kraftaverka lyf segir Dr. Chopra í viðtali við Health.com. hann bendir einnig á margar rannsóknir sem gerðar hafa verið á því hversu gott kaffi er fyrir heilsuna. Þeir sem drekka kaffi hafa lækkað áhættuna á sykursýki 2, parkinsons og krabbameini.

Þessar rannsóknir sanna ekki að kaffið sé ástæða fyrir þessari minnkun á áhættunni en það spilar inn í minkunina.

Hreyfing

Við vitum öll hversu hreyfing er góð fyrir alla. Það er svo aftur á móti okkar að velja hvort við hreyfum okkur eða ekki. Talað er um 150 mínútur á viku í rösklegri göngu sé afar góð hreyfing.

Fáðu daglegan skammt af D-vítamíni

Dr. Chopra mælir með að allir heilbrigðir fullorðnir einstaklingar ættu að biðja lækninn sinn um D-vítamín próf. Það eru allt of marga sem að skortir D-vítamín.

D-vítamínskortur er tengdur við marga sjúkdóma eins og t.d MS, hjartasjúkdóma og sykursýki 2.

Borðaðu hnetur

Þú getur lækkað líkur á krabbameini í brisi, hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og ótímabærum dauða bara með því að borða lófafylli af hnetum á dag. Það eru margir sem kalla þetta mini-heilsufæðið því hnetur eru afar ríkar af andoxunarefnum, omega-3, B-vítamínum og steinefnum eins og selenium og magnesíum. Mundu bara að velja ávallt hnetur sem eru ekki saltaðar.

Hugleiddu

Fólk í heiminum hefur stundað hugleiðslu í þúsundir ára og í dag er hugleiðsla talin vera það besta gegn stressi og kvíða. Mælt er með því að hugleiða í um 15 mínútur daglega fyrir betri andlega heilsu.

Heimild: health.com