Hvað er KSM-66 ashwagandha?
KSM-66® er staðlaður útdráttur úr ashwagandha-rót (Withania somnifera) með að minnsta kosti 5% withanolides. Það er það form ashwagandha sem flestar klínískar rannsóknir hafa verið gerðar á.
Hvað er í KSM-66 Ashwagandha frá Ingling?
400 mg af KSM-66® ashwagandha-útdrætti í hverju hylki. Hylkið er úr jurtabeðmi (HPMC). Inniheldur mjólk. 90 hylki, 90 daga skammtur.
Fyrir hverja?
• Þá sem búa við mikið álag og vilja styðja við ró og jafnvægi
• Þá sem vilja minnka kortisól (streituhormónið)
• Þá sem vilja sofa betur og hugsa skýrar
Hvernig á að taka ashwagandha?
1 hylki á dag með máltíð. Fyrir svefn tekur fólk gjarnan hylkið að kvöldi, fyrir streitu og einbeitingu að morgni. Áhrifin byggjast upp við reglulega notkun; rannsóknir miða við 8–12 vikna samfellda inntöku.
Við hverju hjálpar ashwagandha?
Rannsóknir á KSM-66® benda til þess að það geti stutt við streituþol, lækkað kortisól, bætt svefn og stutt við andlegt og líkamlegt jafnvægi. Það er adaptógen – jurt sem hjálpar líkamanum að laga sig að álagi.
Hækkar ashwagandha testósterón?
Ekki beint. Það lækkar kortisól, sem vinnur gegn testósteróni, og rannsóknir á körlum undir álagi hafa mælt hækkun samhliða. Fyrir beinan stuðning við testósterón er Kraftur samsettur sérstaklega.
Er KSM-66 Ashwagandha vegan?
Þessi útgáfa inniheldur mjólk. KSM-66 VEGAN er til í sérstakri útgáfu án mjólkur.
Má taka ashwagandha með Krafti eða Gyðju?
Kraftur og Gyðja innihalda nú þegar KSM-66® ashwagandha (250 mg og 200 mg), svo yfirleitt er ekki þörf á að bæta við. Djúpur svefn inniheldur 80 mg.
Hverjir ættu ekki að taka ashwagandha?
Ráðfærið ykkur við lækni ef þið:
Ráðlagður dagskammtur: 1 hylki
Áhrifin byggjast upp við reglulega notkun; flestar rannsóknir miða við átta til tólf vikna samfellda inntöku.
Virk innihaldsefni: KSM-66® Ashwagandha extrakt 400 mg í hylki
Önnur innihaldsefni: Hylki úr jurtabeðmi (HPMC)
Pakkning: 90 hylki • 90 daga skammtur • Nettóþyngd 100 g
Ofnæmisvaldar: Inniheldur MJÓLK.
Leiðbeiningar um notkun og geymslu
Fylgið ráðlögðum dagskammti. Ekki skal fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu eða heilbrigðs lífsstíls. Geymið á köldum og þurrum stað, fjarri beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Hvar er KSM-66 Ashwagandha framleitt?
Í framleiðslu Ingling í Mosfellsbæ.