Fara í efni

Matur sem skal forðast með barn á brjósti - Grein af vef mamman.is

Það er ekkert verra en að horfa á barnið sitt rembast og þjást og vita ekki nákvæmlega hvað er að hrjá það. Oft er orsökin einfaldlega mataræði þitt en þó er alls ekkert einfalt að finna út hvað má og hvað má ekki.
Matur sem skal forðast með barn á brjósti - Grein af vef mamman.is

Það er ekkert verra en að horfa á barnið sitt rembast og þjást og vita ekki nákvæmlega hvað er að hrjá það. Oft er orsökin einfaldlega mataræði þitt en þó er alls ekkert einfalt að finna út hvað má og hvað má ekki.

Að hafa barn á brjósti er full vinna og held ég að margir geri sér enga grein fyrir hversu flókin brjóstagjöf getur verið og hversu miklar pælingar liggja á bakvið hana.

Börn eru mismunandi og misviðkvæm og hvað móðir getur borðað til þess að viðhalda mjólkurframleiðslu getur verið mikill hausverkur.

Ég er ein þessara mæðra sem þarf að spá í allt sem fer ofan í mig og hef þurft að gera með öll mín börn. Þrátt fyrir að vera nýbúin að eignast barn númer þrjú þá er þetta alltaf sami hausverkurinn, enda alls ekki algilt að það sem fór illa í eitt barn fari illa í annað. Það eru þó alltaf svipaðar fæðutegundir sem ég þarf að forðast og ef ég passa mig  á að vera á frekar hreinu og einföldu fæði þá gengur allt svo miklu betur.

Ég ákvað að deila með ykkur þeim fæðutegundum sem eru á algjörum bannlista hjá mér en einnig aflaði ég mér upplýsinga á netinu og sá þar að aðrar mæður  hafa svipaðan lista og ég.

  • Laukur, rauðlaukur, hvítlaukur, blaðlaukur eða allt sem heitir LAUKUR! Ef ég borða eitthvað með lauk í þá þýðir það andvökunótt hjá mér og barninu með tilheyrandi gráti og rembingi. Þó hefur verið í lagi að prufa mig áfram með eldaðan lauk (laukur í mat) þegar barnið er byrjað að borða.
  • Hvítkál
  • Jarðarber
  • Sítrusávextir og -safar: Appelsínur, sítrónur, lime og grape
  • Kíví
  • Ananas
  • Vínber
  • Sterk krydd t.d. karrý og chili
  • Tómat pure / paste
  • Egg
  • Gos (þá sérstaklega appelsín) . . . LESA MEIRA 

 

Af vef mamman.is