Fara í efni

Við erum leiðtogar - hugleiðing dagsins

Við erum leiðtogar - hugleiðing dagsins

Við erum leiðtogar, skaparar, fordæmi í eigin tilvist og höfum því áhrif á allt okkar umhverfi. Við einsetjum okkur að vera stöðugt í kærleika, virðingu, þakklæti og náð.

Við öndum að okkur í fullri vitund því ótæmandi lífafli sem ást er og hefjum ferðalagið í ævintýri dagsins. Við öndum að okkur þeirri upplifun sem við stöndum frammi fyrir einmitt núna.

Við skiljum að við höfum skapað kraftaverk með viðhorfsbreytingum og leyfum kraftaverkinu að samlagast líkama okkar og vitund.