Fara í efni

Þakklæti er að skilja með hjartanu - Hugleiðing á mánudegi frá Guðna

Þakklæti er að skilja með hjartanu - Hugleiðing á mánudegi frá Guðna

Þakklæti er að skilja með hjartanu og öllum frumum líkamans að höfnun er einfaldlega viðnám gagnvart augnablikinu.

Flestir upplifa höfnun persónulega – þeir upplifa hana þannig að aðrir hafni þeim. En það er bara ekki hægt. Höfnunin liggur aðeins hjá okkur – hvergi annars staðar en í okkar eigin viðbrögðum og viðhorfum til eigin sjálfsmyndar. Höfnunin getur ekki verið persónuleg; annað fólk getur ekki hafnað þér því að höfnunin getur ekki komið frá öðrum en þér, því upplifunin er öll þín.

Rétt eins og þú getur aldrei orðið reiður út í neinn nema þig. Þeir sem þú velur að vera reiður við eru staðgenglar sem þú notar til að viðhalda blekk- ingunni og vörninni; staðgenglar sem þú þarft að nota því að skortdýrið vill alltaf vera fórnarlamb og ekki beina reiði í eigin garð.

Þú berð alltaf fulla ábyrgð á þínum tilfinningum.

Þegar þú hafnar þér ekki þá getur enginn annar hafnað þér. Þegar þú þakkar fyrir hvert augnablik án þess að dæma það muntu heldur aldrei upplifa neina höfnun.