Fara í efni

Mælanleg markmið - hugleiðing Guðna í dag

Mælanleg markmið - hugleiðing Guðna í dag

Umgjörðin er tímabundin

Rétt eins og göngugrind.
Þú munt ekki þurfa á miklum og margþættum stuðningi að halda alla ævi. En á meðan við losum okkur úr álögum þurfum við að afmarka okkur umgjörð sem styður og styrkir nýjan lífsstíl og dregur úr áreitinu sem samfélagið býður upp á.

Það felst til dæmis umgjörð í því að setja sér mælanlegt markmið – sem byggist á tilgangi og einlægum ásetningi.

Það felst umgjörð í því að fylgjast með næringarmynstrinu og skrásetja það, ekki síst að setja það í samhengi við andlega og líkamlega líðan.

Það felst umgjörð í breyttum neysluvenjum, breyttum innkaupalista, aukinni fyrir- hyggju gagnvart næringu sem þú tekur með þér í vinnuna og inn í daginn.

Það felst umgjörð í því að vera alltaf ábyrgur gagnvart eigin þörfum og setja þig aldrei í stöðu fórnarlambs.

Það felst umgjörð í því að umgangast fólk sem hugsar á svipuðum nótum eða hefur að minnsta kosti skilning á þeim breytingum sem þú vinnur að.

Það felst umgjörð í þeirri ákvörðun þinni að taka því ekki persónulega þegar fólk gerir lítið úr viðleitni þinni til að breyta um lífsstíl – að hlusta ekki á úrtöluraddirnar sem munu heyrast.

Umgjörðin er þetta og margt fleira. Og það er ekkert mál að búa hana til og viðhalda henni þegar þú hefur tekið ákvörðun – þegar þú hefur heitbundið þig velsældinni.

Við erum stöðugt að tjá okkur, opinbera okkur og segja umhverfinu hversu verðug við erum.

Breytingin snýst um að birtast í nýrri umgjörð út frá nýjum forsendum – að heitbinda sig breyttu viðhorfi til næringar, því að þá kemur heimurinn til hjálpar.