Fara í efni

Líkaminn er farartæki sálarinnar - hugleiðing dagsins frá Guðna

Líkaminn er farartæki sálarinnar - hugleiðing dagsins frá Guðna

Hver er tilgangur minn sem starfskraftur?

„Ég er ljós og orka í starfi mínu“

Að virða það umhverfi sem veitir mér atvinnu og vera heiðarlegur með mitt framlag. Að leggja mig fram þannig að bæði atvinnurekandi og ég njóti jafnvægis og blómstri saman. Sem starfskraftur er ég ekki duglegur – því það orð vísar aðeins til þess að ég sé líklegur til dugnaðar. Ég er hins vegar dugandi – ég hef dug og er innblásinn af þeim anda og þeirri ástríðu sem ég deili með öðrum.

Hver er tilgangur minn gagnvart líkamanum?

„Ég þjóna líkamanum til að þjóna anda mínum“

Líkaminn er farartæki sálarinnar og minn til- gangur er að skilja að líkami minn er musteri. Ég nálgast hann af sömu alúð og virðingu og ég myndi nálgast það allra helgasta. Tilgangur minn er að þjóna líkama mínum þannig að hann þjóni anda mínum.