Fara í efni

Hver er þinn tilgangur - hugleiðing dagsins frá Guðna

Hver er þinn tilgangur - hugleiðing dagsins frá Guðna

Leitið og þér munið ekkert finna

Við þurfum ekki að leita að tilganginum og heldur ekki að finna hann, en við getum á hvaða augnabliki sem er ákveðið tilgang okkar. Tilgangur allra einstaklinga er að uppgötva eða taka fulla ábyrgð á frjálsum vilja; að mæta til fulls og vera máttugur í eigin lífi. En tilgangur einstaklingsins er alltaf sá sami þótt það megi klæða hann á mismunandi máta; umbúðirnar geta verið misjafnar, en innihald tilgangsins er alltaf það sama og það er að gefa af sér og elska.

Að einbeita sér að hugmyndinni um „okkur“ en ekki hugmyndinni um „mig“. Okkar hlutverk er að velja hvernig við ætlum að elska, hvernig við ætlum að hafa áhrif á umhverfi okkar.

Af hverju eru þá svona margir týndir og alltaf að leita að þessum tilgangi? Þegar þú ert að leita ertu sjálfur týndur; þá ertu ekki með þér, hér og nú, svona, eins og þú ert.

Það er ekkert að finna nema sjálfan sig. Þegar þú býrð við skort í tilvist þinni, þá ert þú skorturinn. Þegar þér finnst eitthvað vanta þá er það af því að þig vantar – þú ert ekki til staðar í eigin lífi.