Fara í efni

Heitbinding við eigin tilvist - hugleiðing dagsins

Heitbinding við eigin tilvist - hugleiðing dagsins

Heitbinding við eigin tilvist og eigin persónu er ekki flóknari athöfn en að giftast annarri manneskju.

Í henni felast nákvæmlega sömu hugmyndir. Samt er okkar eigin heitbinding mikilvægari.

Heitbindingin er að skrifa undir á punktalínuna – að ganga að eiga sig, með kostum og göllum, í blíðu og stríðu.

Að heitbindast sjálfum sér.

Af hverju heitbindumst við annarri mann­eskju áður en við höfum mátt og heimild til að heitbindast sjálfum okkur?

Og einmitt þá rætist ævintýrið sem við höfum lesið um frá barnæsku – froskurinn losnar úr álögunum og breytist aftur í prins eða prinsessu.