Fara í efni

Guðni skrifar um örlætið í hugleiðingu dagsins

Guðni skrifar um örlætið í hugleiðingu dagsins

Örlátt er þakklátt hjarta

Örlæti er það allra besta – það er ljósið, lífið sjálft. Örlæti er ótakmarkað þakklæti – þakklæti sem er svo mikið að það gefur og gefur og gefur; það gefur því það treystir því að alltaf sé nóg; að aldrei sé skortur.

Í örlæti hef ég treyst mig svo mikið að ég er aftur orðinn sterkur.

Örlæti er þakklæti sem hefur tengst frjálsu hjarta; tíðni hjartans magnast upp í hámark, því engin tíðni er öflugri en tíðni örlætis.

Lokaðu augunum og hugs­aðu um venjulegan dag í þínu lífi. Hvort heldurðu að þú sért frekar að telja blessanir þínar eða bölvanir? Mundu að allt sem þú veitir athygli vex og dafnar.

Hjá flestum okkar er styttra í slæmu minninguna en þá góðu; styttra í neikvæðu tilfinninguna en þá jákvæðu. Þess vegna eru flestir sem ég hef hitt uppteknari við að telja bölvanir sínar en blessanir. Þeir beina sterku ljósi athyglinnar á bölvanir sínar, þær verða fyrirferðarmeiri með hverjum deginum af öllum áburðinum, af allri umhyggjunni.

Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar.