Fara í efni

Hvenær er maður alveg nóg?

Við erum öll alveg í 100% lagi ....sama hvað vigtin segir :) Hana er hægt að laga upp eða niður. En hættum að vera með endalaust niðurrif.
Hættum að rífa okkur niður eftir vigt.
Hættum að rífa okkur niður eftir vigt.

Góðan daginn.

Sunnudagsmorgun það er eitthvað svo þægilegt :)
Og gott að hafa svona dag sem maður hleður batterýin.

Hvernig er með þetta sjálfsöryggi ?
Hvenær megum við vera stolt af okkar líkama?
Er það þegar að nánast "photoshop" lúkki er náð ?
Erum við þá orðin nógu í lagi?
Má ekki vera eitt aukakíló eða hvað mega þau vera mörg auka til að við séum í lagi?

Þessi heimur er orðin svolítið töff.
Og allir eiga að vera nánast "forever young" og ótrúlega flottir.
Ég hef aldrei haft sjálfsöryggi á sjálfan mig.
Því ég hef alltaf verið of feit, of hávaxin, of stórt nef, ljótan maga, stóra kálfa , feitt bak.....
Og talningin getur haldið endalaust áfram.
Hvaðan koma þessar hgmyndir inn í kollinn á manni?
Í dag sé ég að þetta eru ranghugmyndir :)
Ég er alveg tipp topp eins og ég er.
Það er alltaf hægt að gera betur ......en sumt er bara alveg nóg :)

Það er mér þvílíkur léttir að viðurkenna þetta fyrir sjálfri mér.
En þegar að maður hefur haft þessar hugmyndir alla ævi....breytist þetta ekki yfir í 100% sjálfsöryggi á einni nóttu.
Nei ég þarf að læra að þykja það vænt um mig að bjóða mér ekki upp á niðurrif deginum lengur :)
Við erum öll alveg í 100% lagi ....sama hvað vigtin segir :)
Hana er hægt að laga upp eða niður.
En hættum að vera með endalaust niðurrif.

Ég er að skrifa þetta í dag því ég hitti svo oft fólk sem fer í flækju þegar að það hittir mig í dag.
Eins og ég sé einhver önnur manneskja eftir að hafa misst nokkur aukakíló.
Það fer í vörn og byrjar svo oft að afsaka sig :/
"ég er nú ekki svona dugleg eins og þú"
" eg er nú með mín aukakíló...alveg að fara gera eitthvað ....hehehe"
Sumir hreinlega fara fram hjá mér á flótta.
Það er afþví fólk er í vörn.
Því það skammast sín .....því ef hún gat þetta þá Á ÉG að vera búin að gera þetta líka!
Iss við erum öll allskonar :)
Og ég er ekki heilög :)
Og geng um með mín aukakíló ánægð í dag.
Ætla hætta dæma sjálfan mig fyrir endalausa þvælu.
Og mæli með að allir taki sér það til fyrirmyndar :)
Brosum framan í lífið <3
Sama í hvað vigt við erum.
Við erum hvorki betri né verri .....en nokkur annar :)

Njótum dagsins :)
Minn dagur fer í það að pakka matarheftum ....og dagurinn er full bókaður.
Takk fyrir kærlega þið sem hafið verið að panta :)
Núna er ég alveg að vera komin með að opna allan póst.