Fara í efni

Koma sér í gallann og njóta lífsins.

Ekki fara fram úr þér. En ef það gerist ..... Þá er að príla upp á hestinn aftur.
Allir geta gefið gott.
Allir geta gefið gott.

Góðan daginn.

Dagur tvö í sól.
Það þarf ekki meira til en þessa dásamlegu sól til að ég spretti sem gormur í gallann.

Stundum hugsa ég hvernig í and!$"# þorði ég að skrifa á þessa síðu :)
Ég þessi venjulega.
Bara húsmóðir í úthverfi.
Alltof feit og búin á því.
Tók sig til og reddaði sjálfri sér :)

Og ekki er ég komin á þann stað ennþá að ég sé ánægð.
Held að það sé heila málið.
Að vera alltaf pínu hungraður í meiri árangur.
Að hafa ofurtrú á að þetta sé bara allt að gerast.
Held meira að segja að ég sé nokkuð sátt með að vera komin á þann stað að þetta sé eilífðar verkefni. 
Og um að gera njóta bara hvers dags.

Til þess að byrja og ná árangri í því sem lagt er upp með.
Er hreinlega bara að taka skrefið !
Hoppa í gallann ....jú getur tekið smá á að finna galla hér á landi ef líkaminn er stór!
En allt er hægt :)
Síðan er bara að taka lítil skref.
Matarlega séð, hægt og rólega að breyta matnum sínum.
Ekki með bönnum og boðum.
Heldur breytingum.
Reima á sig skóna og skoða nágreni sitt.
Það er ýmislegt sem leynist í næsta nágreni.

Ekki fara fram úr þér.
En ef það gerist .....
Þá er að príla upp á hestinn aftur.

Jæja ég er farin út í góða veðrið.

Njótið dagsins.