Fara í efni

Hamborgari og franskar.

Ég byrjaði á því að skera niður sæta kartöflu í "frönsku kartöflu" stærð. Þá raða ég þeim á bökunarpappír með ofnskúffu undir. Rétt nokkra dropa af olíu og gott salt. Baka svo í ofni.
Um að gera njóta.
Um að gera njóta.

Kvöldmaturinn.

"Jessssörí" hamborgari með frönskum :)

Þín Verslun Seljabraut er algjörlega með bestu hamborgarana.
Og þeir eru á tilboði núna .... það þurfti ekki að segja mér það tvisvar :)
Kjötborðið er svo til fyrirmyndar hjá þeim :)
Já, alltaf að hrósa því sem vel er gert.

Ég byrjaði á því að skera niður sæta kartöflu í "frönsku kartöflu" stærð.
Þá raða ég þeim á bökunarpappír með ofnskúffu undir.
Rétt nokkra dropa af olíu og gott salt.
Baka svo í ofni.
Passa bara að þær brenni ekki :)

Í leiðinni skar ég gula papriku í tvennt sem ég baka í ofni og nota sem "hamborgarabrauð".
Verður sæt og góð.
Miklu betra en brauð :)

Bearnaise sósan kemur líka frá Þín Verslun ... algjör bomba :)
Bara fara varlega þar ....
Kokteilsósan er
Sollu tómatsósa
Sýrður rjómi
Hunts "fat free" nýja sinnepið frá þeim ... sjúkt í svona sósur :)
Avocadoið bara avocado niður stappað .... alveg möst með :)

Steikti borgarann á pönnu og kryddaði með creola kryddinu frá Pottagöldrum og saltverkinu.
Grænmeti með og svo bara að njóta :)

Hver segir að hollustan þurfi að vera "boring"
Bara græja fallegan hollan mat og vera duglegur að finna upp á einhverju nýju og góðu :)

Njótið kvöldsins .... mitt kvöld er frátekið á date með Vesturbæjar ís :)
Það er föstudagur og það er minn ísdagur :) :)