Fara í efni

Hollt og þrusugott.

Pastað er "gersemi" sem ég keypti í Brighton um daginn. Búið til úr mais og kínóa :) Glutein frítt og flott.
Einfalt og gott.
Einfalt og gott.

Kvöldmaturinn.

Mig langaði bara í eitthvað sósað og hálf sveitt :)

Svo skellti kjúklinga lærum inn í ofn.
Kryddað með arabíska kjúllakryddinu frá Pottagöldrum, Basil salti og nýmulin pipar.
Gott að hafa þau bökuð og stökk :)

Pastað er "gersemi" sem ég keypti í Brighton um daginn.
Búið til úr mais og kínóa :)
Glutein frítt og flott :)
Var svolítið efins.....en þetta þýðir að Brighton er aftur á dagskrá fljótlega :)
Þvílík snild.

Sósan:

Skar niður smátt.
Papriku
Vorlauk
Kúrbít
Hvítlauk

Steikti á pönnu með salti og pipar.
Bætti svo vatni og grænmetiskrafti við.
Þá smá af camenbert smurosti....allt hrært vel saman...og í lokin bæta við fjörmjólk eftir smekk ( eða rjóma/kaffirjóma)

Þetta svaraði sukk þörfinni sem heltist yfir mig síðdegis :)