Fara í efni

Erum við of hrædd?

Ekki byggja mér helli þar sem ég gat stækkað inn í og falið mig. Heldur hjálpa sjálfri mér að verða bara betri ég ekki betri einhver annar.
Taktu sénsinn.
Taktu sénsinn.

Góðan daginn.

Ertu hrædd/ur?
Er margt sem að hræðir þig vegna þess að þú getur ekki gert hlutina?

Ég fór í smá leik á sjálfan mig fyrir all nokkru.
Að það sem ég hræðist ýti ég mér útí.
Að fara alltaf aðeins lengra.
Ýta sjálfri mér út í það ómögulega.

Þegar að ég tók þá ákvörðun að prufa í siðasta skiftið að koma mér úr verulegri offitu yfir í hraustara eintak þá breyttist margt.
Ég skráði mig á ársnámskeið hjá Helsuborg og við tók ferðalag sem ég er ennþá í á fullu í. 
Og búin að fatta að þetta ferðalag er heimsreisa og til tunglsins ....
Og sennilega endar þetta ferðalag ekki fyrr en ég fer í ferðina til eilífðar :)
Á þessu ferðalagi mínu er ég búin að skoða marga staði sem ég vissi ekki einu sinni að ég ætti erindi á.

Algjörlega búin að umbylta lífinu og ýti mér stöðugt í aðstæður sem ég hræddist svo áður.
Ég vildi helst vera sú ósýnilega .....
Ekki sjást því of feit.
Mislukkuð.
Sú sem ekki gat verið þetta flotta í gyminu og verið með þetta.
Allt "heimatilbúin steypa"

Í dag er ég bara ég.
Nokkuð mörgum kílóum léttari jú.
En alveg með allskonar nýjar áherslur á hvað sé hægt að laga!
Ekki byggja mér helli þar sem ég gat stækkað inn í og falið mig.
Heldur hjálpa sjálfri mér að verða bara betri ég ekki betri einhver annar.
Sættast við sjálfan mig :)
Það er bara allt í lagi að vera maður sjálfur.
Og vera bara bestur í þvi.
Hætta vilja vera svona og hinsegin alveg eins og þessi "flotti" sem allt getur.
Ef þú gerir þitt besta fyrir sjálfan þig þá er það bara meira en nóg.
Við erum öll allskonar og eigum að fá að vera þannig.
Ekki vildi ég að heill heimur væri alveg eins og ég.....mikið væri það skrýtið :)

Jæja ég er komin í gallann og læt Tabata hrista lífi í mig í morgunsárið.

Njótið dagsins.