Fara í efni

Lax og sjúklegt meðlæti.

Feitur góður fiskur með súper meðlæti. Og líkaminn blómstrar.
Lax og súper meðlæti.
Lax og súper meðlæti.

Kvöldmaturinn.

Ekki amalegt að fá sér svona hressandi kvöldmat.
Algjörlega minn uppáhaldsmatur.

Lax steikur í ofni....í 20min.
Hef ofninn minn stiltan á 180 gráður með blæstri.
Krydd Maldon salt og nýmalaður pipar.

Meðlæti.
Aspas steikur með nokkrum olíu dropum og helling af ferskum sítrónu safa...kryddað með Maldon salti og pipar.

Salat
Iceberg
Gúrka
Plómutómatur
Rauðlaukur
Avacado
Rauð paprika
Mango
Feta í bláu krukkunum...og smá af hreinum feta kubbi.
Ristuð fræblanda frá Heilsu Omega-3 bomba.

Ég elska lax með svona meðlæti .