Fara í efni

Hádegi með stæl.

Þetta er skot stund að útbúa. Ég nota bara í þetta þaðsem ég á inn í ísskáp í hvert skiptið Aldrei eins :)
Ljúf eggjakaka.
Ljúf eggjakaka.
Hádegi 

Einn tveir og "Bingó" hádegið klárt og hollustan í fyrirrúmi.

Elska svona eggjabökur.
Tekur bara augnablik að redda sér "einni böku"

Eggjabaka.

2 egg
Reyktur Lax
Avacado
Mango
Rauð paprika
Brokólí spírur
sveppir
Spínat
Aspars ferskur

Chilli salt og pipar 

Aðferð.

Skella 1 tsk. olíu á pönnu sem má fara inn í ofn.
Steikja sveppina í smá stund .
Hræra eggin og spírurnar saman.
Skella því yfir sveppina.
Síðan bara föndra af fingrum fram restina ofan á.
Skella í orskots stund inn í funheitan ofninn og hafa grillið kveikt á uppi svo bakist vel á toppinn.

pipar yfir allt og salt eftir smekk.

Þetta er skot stund að útbúa.
Ég nota bara í þetta þaðsem ég á inn í ísskáp í hvert skiptið 
Aldrei eins :)

Mæli svo sannarlega með þessu.