Fara í efni

Mánudagsmorgun.

Desember mánuður fyrir mitt leiti er töff. Það er allt í boði . En mitt að opna munninn og kyngja .
Borðum og njótum.
Borðum og njótum.

Góðan daginn.

Kaldur morgun ...kisurnar mínar búnar að opna vel út og viðra hérna hjá mér :)
Svo brrrrrr og verð að fara skipta um gluggaopnun...því önnur kisan er töluvert gáfaðri en hin og kann að opna alla glugga og læsinga ;)

Allavega "Hver er munurinn á megrun og nýjum lífsstíl" fæ þessa spurningu svo oft :)
Þarna er svarið svona nærri því ..... á myndinni þar að segja :)
Því ef maturinn er hreinn og góður er eiginlega megrunin og allar þessar kalóríu teljanir foknar út í veður og vind.
Það þarf samt alltaf að passa sína skammtastærð.....sama hvað maður borðar .
En ef að næringin er holl og hreint mataræði er þetta svo miklu aðveldara :)

Það koma jól, áramót, páskar, afmæli, árshátíðir , útskfritir, utanlandsferðir og allskonar inn í líf okkar :)
Og við ætlum ekki að fara í fílu yfir því að mega ekki borða :)
Við megum borða nærri allt :)
En veljum vel .
Ef við veljum vel flest alla daga getum við alveg kíkt aðeins í veislurnar :)
Förum ekki í "fílumegrun" þar sem allt er bannað og maður situr í fílu í einu horninu....og hugsar ég má ekkert og drekkur bara sitt vatnsglas.
Það er fyrir mitt leiti ofbeldi á sjálfan sig.
En til þess að geta haft svona stjórn ....þá þarf smá púsluspil við sjálfa sig í höfðinu .
Ekki missa tökin.
Að leifa sér smá þýðir ekki að detta ofan í djúpulaugina og hálf drukna í dásemdum lífsins....

Ég þarf á hverjum degi að spá í þetta alt.
Desember mánuður fyrir mitt leiti er töff.
Það er allt í boði .
En mitt að opna munninn og kyngja :)
Þannig kæru vinir....ég er alveg eins og við flest....er að eiga við "tröll og dreka" í höfðinu alla daga vikunar.
En að temja þessa vini mína er málið :)

Jæja gallinn komin á sinn stað ....harðsperrurnar rétt að líða úr og þá er að hlaða nýjum inn!!
Svona rúllar þetta :)

Njótið dagsins <3