Fara í efni

Þitt er valið að betra lífi.

Og ég lifi bara einn dag í einu. Þetta er og verður alltaf barátta. En svo sannalega þess virði.
Ég ber ábyrgð á sjálfri mér.
Ég ber ábyrgð á sjálfri mér.

Góðan daginn.

Þegar að ég fattaði það að ég hafði val.
Ég var sú sem bar ábyrgðina.
Sú sem kom mér í hæðstu vigt.
Algjörlega ég og engin annar gat breytt því að mér er að takast að snúa við blaðinu.

Þetta er allt spurning um val.
Hvorn kostin ætlaði ég að velja ?
Að verða veikari og þyngri ....eða ná tökum á lífinu og vigtinni.
Ná tökum á mínum eigin huga.

Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef gert á ævinni.
En mögulega er ég líka búin að bjarga lífi mínu.
Svo valdi ég rétt....
Já það er ekki spurning 
Og ég lifi bara einn dag í einu.
Þetta er og verður alltaf barátta.
En svo sannalega þess virði.

Og í gallann frú. Sólveig þetta gerir sig ekki sjálft!

Eigið góðan dag.