Fara í efni

Þú átt valið svo veldu besta kostinn.

Ekki hugsa of langt fram á við. Lifa í núinu. Og gera sitt besta í átt að betra eintaki af sjálfum sér.
Njótum lífsins.
Njótum lífsins.

Góðan daginn.

Jæja þá er að skrifa sig inn í daginn.
Þegar að ég byrjaði á að breyta lífsstílnum hugsaði ég,
"Get ekki tapað neinu "
Bara hendi mér í djúpu.
Því allt sem ég var búin að prufa áður til betra lífs virkaði ekki alveg nógu vel.
Megranir, svelti, ofurtrú á lyf, hreyfingarleysi og offita var að draga mig niður ... neðar og neðar.

Og þegar að ég hreinlega "plataði" mig í að trúa að allt væri hægt fóru hlutirnir að virka. 
En með tímanum fór ég að trúa því að hreinlega allt væri hægt.
Og ég ýtti mér aðeins lengra á hverjum degi í átt að því sem ég vil.
Nefnilega, málið er að ég hef val :)
Ég ber nefnilega ábyrgð á sjálfri mér.
Ekki læknirinn minn með lyfjavaldið.
Eða þjálfarinn minn með æfingarnar.

Ég verð að velja hlutina rétt.
Versla rétta matinn.
Koma mér í gallann.
Og halda áfram að velja rétt fyrir engan annan en sjálfan mig
Vilja sjálfum sér það besta.

Þetta er allt hugarástand.
Og mikill lærdómur sem þessu fylgir.
Að einblína ekki á það slæma.
Ekki hugsa of langt fram á við.
Lifa í núinu.
Og gera sitt besta í átt að betra eintaki af sjálfum sér.

Njóta lífsins :)
Í hvað vigt og líkamlegu ástandi sem við erum í.
Einblína á að vilja sjálfum sér vel.
Þá fer maður að líta á sjálfan sig bjartari augum.

Njótið dagsins.