Fara í efni

Kjósið langhlaupara ársins 2015 - þriðji karlmaðurinn og þriðja konan sem tilnefnd eru

Kjósið langhlaupara ársins 2015 - þriðji karlmaðurinn og þriðja konan sem tilnefnd eru

Í sjöunda skiptið stendur hlaup.is fyrir vali á langhlaupara ársins, bæði í karla- og kvennaflokki. Þá er einkum verið að horfa til afreka í götu- og utanvegahlaupum eða annarri keppni í langhlaupum.

Afrek er afstætt, getur verið góður tími miðað við aldur, óvenjulegt verkefni, þrautseigja og kjarkur eða hvaðeina sem hægt er að meta til viðurkenningar.

Samtals voru 30 hlauparar tilnefndir í karla- og kvennaflokki til langhlaupara ársins 2015. Að þessu sinni eru það 6 konur og 6 karlar sem mynda endanlegan lista hlaupara sem kjósa á um. Það val var ekki auðvelt frekar en áður, því margir af þeim hlaupurum sem tilnefndir voru, hafa hver á sinn hátt unnið góð afrek og/eða sýnt mikla þrautseigju á síðasta ári.

Valnefnd til að velja úr tilnefningum þeim sem bárust, skipa Torfi Helgi Leifsson umsjónarmaður hlaup.is, Sigurður P. Sigmundsson langhlaupari og þjálfari, Gunnar Páll Jóakimsson þjálfari og fyrrum þjálfari Skokkhóps ÍR, Erla Gunnarsdóttir fyrrum þjálfari Skokkhóps Fjölnis í Grafarvogi og Margrét Elíasdóttir þjálfari KR-skokk.

Hægt verður að kjósa til kl. 24 mánudaginn 1. febrúar 2016. Verðlaunaafhending verður fyrstu helgina í febrúar (nánari tímasetning síðar) og tilkynnt verður um niðurstöðu kosningar í kjölfarið á því hér á hlaup.is.

Allir sem kjósa fara í pott og geta unnið hlaupaskó.

Form til að kjósa langhlaupara ársins (athugið að gefa besta hlaupara 6 stig og svo koll af kolli).

Kári Steinn Karlsson (29 ára)  byrjaði árið mjög vel er hann setti Íslandsmet í hálfmaraþoni (1:04:55) í Berlín í lok mars. Mánuði síðar hljóp hann maraþon í Hamborg á 2:21:20 klst en fann sig ekki vel. Í ljós kom að Kári Steinn gekk ekki alveg heill til skógar og urðu veikindi hans til þess að hann keppti lítið sem ekkert það sem eftir var ársins. 

Elísabet Margeirsdóttir (30 ára) var atkvæðamikil í utanvegahlaupum sem fyrr. Varð í 138. sæti í heild af 349 (14. sæti af 34 konum) sem luku 127 km fjallahlaupi Transgrancanaria 6. mars, samanlögð hækkun um 8.500 m. Þá stóð hún sig einnig vel í Ultra-Trail du Mont-Blanc 168 km fjallahlaupi er fram fór í lok ágúst, hljóp á 32:40:26  klst. og varð í 15. sæti í kvennaflokki og bætti sinn fyrri tíma um 1:30 klst. Þá varð Elísabet í 3.sæti kvenna í 45 km utanvegahlaupi á Tenerife í byrjun desember.

Af vef hlaup.is