Við ætlum að gera mikið af Burpees, ef þú veist hvað Burpess er þá er líklegt að þú sért að fussa og sveia núna… Ég veit, þetta er ekki skemmtilegast æfingin. Ég þoldi ekki að gera Burpees, og mörgum finnst hún mjög krefjandi! En málið var að ég þoldi ekki að gera hana af því ég var svo grútléleg í þeim. Ég var eins og ég veit ekki hvað, eins og algjör hlunkur. Ef þú kannast við þetta þá ættir þú einmitt að gera þessa æfingu með mér því það þýðir að þig vanti meiri styrk, og hvernig fáum við meiri styrk, jú við æfum!
Ég vona að ég hafi náð að sannfæra þig að gera æfinguna með mér í dag ;)
Byrjaðu á því að hita upp og undirbúa þig fyrir æfingu dagsins, en hún er eftirfarandi
Stilltu klukkuna (eða appið) á 30 sek keyrslu og 10 sek hlé. (hvíldu í 30-60 sek á milli umferða) Endurtaktu 4 umferðir
Þessi var rosaleg, ég náði varla andanum þarna í lokin!
Ef þú kláraðir, glæsilegt! Ef þú vilt fá fleiri æfingar, komdu yfir á HiiTFiT.is og fáðu 5 aðrar sendar til þín.
Þangað til næst...
Heilsukveðja,
Sara Barðdal ÍAK einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi