Fara í efni

Skokkhópur fyrir byrjendur á öllum aldri

Námskeiðið hefst 19. maí en fræðslu- og kynningarfundur verður haldinn í ÍR heimilinu þann 15. maí.
ÍR skokk, einn af elstu hlaupahópum Íslands
ÍR skokk, einn af elstu hlaupahópum Íslands

ÍR skokk, einn af elstu hlaupahópum Íslands, stendur fyrir 12 vikna vönduðu byrjendanámskeiði fyrir alla sem vilja hlaupa í sumar. Námskeiðið hefst 19. maí en fræðslu- og kynningarfundur verður haldinn í ÍR heimilinu þann 15. maí.

Námskeiðið er ætlað þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í hlaupum og hafa engan eða lítinn bakgrunn. Markmiðið er að í lok námskeiðsins ættu flestir að geta hlaupið 5-8 km samfellt.

Æfingadagar verða sem hér segir:

Mánudagar:      kl. 18 frá ÍR heimili

Miðvikudagar:  kl. 18 frá ÍR heimili

Laugardagar:   kl. 10 frá Breiðholtslaug

Innifalið í námskeiðinu er æfingaáætlanir í samræmi við getu en auk þess gefst þátttakendum kostur að sækja fyrirlestra um lífsstílsbreytingar, hlaupabúnað og næringu.

Allir sem skrá sig fá 15% afslátt af skóm í vefverslun Heilsutorgs 

Námskeiðið kostar aðeins 12.000 kr