Fara í efni

Hreyfing og álagstengdir stoðkerfisverkir

Regluleg hreyfing getur verið fyrirbyggjandi ásamt því að draga úr einkennum stoðkerfisverkja. Styrktar- og þolþjálfun leiðir af sér aukna afkastagetu vöðva.
Hreyfing og álagstengdir stoðkerfisverkir

Regluleg hreyfing getur verið fyrirbyggjandi ásamt því að draga úr einkennum stoðkerfisverkja. Styrktar- og þolþjálfun leiðir af sér aukna afkastagetu vöðva, sina og beina sem gerir þá stoðkerfið betur í stakk búið að takast á við það líkamlega álag sem fylgir daglegu lífi. Þeim mun betur sem stoðkerfið getur tekist á við álag, þeim mun minni líkur eru á álagstengdum stoðkerfisverkjum.

Algengt er þó að þegar einstaklingar byrja að hreyfa sig eftir tímabil hreyfingarleysis að upp komi verkir, annarsvegar auknir verkir eða verkir sem viðkomandi hefur ekki fundið fyrir
áður. Það þarf þó ekki að þýða að hreyfingin sjálf sé aðal ástæðan fyrir auknum eða nýjum
verkjum heldur mögulega er líkamsstaða, líkamsbeiting og/eða einhver endurtekin hreyfing ídaglegu lífi vandamálið og við aukið álag eins og að byrja að hreyfa sig að þá komi verkirnir upp eða aukist. Mikilvægt er að fara rólega af stað þegar byrjað er að hreyfa sig, beita sér rétt og vel við hreyfingu og í daglegu lífi og leyfa líkamanum að aðlagast smátt og smátt.

Ráð þegar upp koma álagstengdir stoðkerfisverkir: 

·        Létt hreyfing (rólegur göngutúr / hjólatúr / sund). 

·        Draga tímabundið úr því álagi sem mögulega gæti verið að valda verknum. 

·        Huga að góðri líkamsstöðu og líkamsbeitingu. 

·        Losa um stífa vefi með nuddbolta eða nuddrúllu. 

·        Leita aðstoðar hjá fagaðila. 
 

Ráð til að fyrirbyggja álagstengda stoðkerfisverki: 

·        Stunda reglulega styrktar- og þolþjálfun. 

·        Huga að góðri líkamsstöðu og líkamsbeitingu í vinnu og daglegu lífi. 

·        Svefn í 7-8 klukkustundir á nóttu hjálpar til við að draga úr bólgum. 

Alla greinina má sjá hér: https://netsjukrathjalfun.is/hreyfing-og-verkir/ 

 

VIVUS þjálfun 

Sara Lind Brynjólfsdóttir 

 

VIVUS Þjálfun 

 vivusmommur 

vivusthjalfun