Tökum sem dæmi mjög algengar æfingar fyrir upphandleggsvöðva, tvíhöfða og þríhöfða.
Hér skiptir öllu máli að standa með hné í smá beygju, ekki yfirrétta hné, og velta mjaðmargrind undir sig þannig að naflinn dregst inn. Það hjálpar að spenna grindarbotninn og þá er komin læst staða á mjóbak og djúpir kviðvöðvar virkjast vel. Síðan er unnið með hendur og æfingin gerð en staða fóta og spenna kviðvöðva helst óbreytt.
Þegar þú setur handlegg upp fyrir höfuð þá færist þyngdarpunkturinn. Margir yfirrétta hnén og láta magann detta fram til að mæta því og setja þannig mjög mikið álag á bakið. Með því að beygja hnén aðeins og velta mjaðmargrind undir sig þannig að naflinn dregst inn, spenna grindarbotn og halda spennu, þá passar þú upp á bakið og nærð góðri kviðæfingu á meðan þú réttir úr olnboga og gerir triceps æfingu
Það að velta mjaðmargrind og draga naflann að sér kveikir vel á kviðvöðvum og þarf sérstaklega að passa upp á í öllum æfingum þar sem handleggir fara frá líkama, einnig í sitjandi æfingum. Þannig ferðu vel með bakið og færð meira út úr hverri æfingu með því að þjálfa kviðvöðvana með.
Sveinn Sveinsson, Sjúkraþjálfari í Gáska