Fara í efni

NÁMSKEIÐ - HAM VIÐ ÞUNGLYNDI OG KVÍÐA

NÁMSKEIÐ - HAM VIÐ ÞUNGLYNDI OG KVÍÐA

Námskeið á vegum SIBS byrjar 19.október. Námskeiðið er ætlað þeim sem eru að glíma við þunglyndi og/eða kvíða. 

Skráning er á síðu þeirra sibs.is 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tímabil

19.10.2015 - 11.11.2015

Almennt verð

64.900 kr.
3000 kr. afsláttur fyrir félagsmenn í aðildarfélögum SÍBS

Um námskeiðið

Staður og stund:

SÍBS, Síðumúla 6 2.h. (lyfta), 108 Reykjavík. Stofa 2.
Mán. og mið. 19., 21., 26. og 28. okt. og 2., 4., 9., og 11. nóv. kl. 16:15 – 18:15 (8 skipti).

Lýsing:

Á námskeiðinu er farið yfir helstu einkenni þunglyndis og kvíða og kynntar leiðir sem hafa reynst gagnlegar í að takast á við þunglyndi og kvíða. Umfjöllunarefni í tímunum er m.a. að setja sér markmið, að takast á við vandann, tilfinningalæsi, fimm þátta líkanið, hugsanaskekkjur, að breyta neikvæðum hugsunarhætti, atferlistilraunir, kjarnaviðhorf og lífsreglur, sjálfsefling og ákveðni og að lokum bakslagsvarnir og fleiri leiðir. Stuðst er við HAM-bók Reykjalundar: ham.reykjalundur.is

Hentar fyrir:

Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem eru að glíma við þunglyndi eða kvíða.

Leiðbeinandi:

Inga Hrefna Jónsdóttir sálfræðingur

 

Af vef sibs.is