Fara í efni

Að stunda kynlíf er virkilega allra meina bót!

Getur það verið að með því að stunda kynlíf reglulega megi bæði bæta líðan síðan og heilsu að mörgu leyti?
Að stunda kynlíf er virkilega allra meina bót!

Getur það verið að með því að stunda kynlíf reglulega megi bæði bæta sína líðan og heilsu að mörgu leyti?

Svo vilja sérfræðingar alla vega meina og þreytast seint á því að segja okkur hversu gott kynlífið sé fyrir okkur. Samkvæmt þeim getur kynlífsiðkun víst gert ótrúlegustu hluti fyrir líkama og sál.

Fyrir utan þá ánægju sem kynlíf veitir eru hér tólf atriði sem það getur annað hvort læknað, dregið úr eða gert betra

1. Kynlíf getur hjálpað til við góðan svefn

Það þykir margsannað að kynlíf hjálpar okkur að slaka á. Við kynmök losna hormónarnir oxytocin út í líkamann en þessir hormónar eru gjarnan kallaðir ástarhormónarnir. Þeir veita vellíðan og ákveðna ró og nánd. Þannig að ef þú getur ekki sofið þá veistu hvað þú átt að gera.

2. Kynlíf getur læknað höfuðverk

Já, þar flaug sú gamla afsökun út um gluggann að kenna höfuðverknum um að geta ekki haft mök. Fyrir þá sem þjást af mígreni er kynlíf víst mjög góð lausn við höfuðverknum og gæti jafnvel verið betri leið en verkjatöflurnar. Við mök myndast endorfín hormónar í heila sem eru verkjastillandi.

3. Kynlíf dregur úr stressi

Það er að segja það hjálpar þér að vera minna stressaður. Það eru oxytocin hormónarnir sem veita þessa róandi tilfinningu.

4. Kynlíf minnkar verkjanæmi

Talið er að kynlíf geti hækkað verkjaþröskuldinn og þar með látið þig finna minna til. Það er endorfínið sem myndast er virkar eins og náttúruleg verkjatafla.

5. Kynlífið getur dregið úr veikindadögum

Þeir sem stunda kynlíf reglulega hafa víst meira þol gagnvart sýklum, veirum og öðru slíku, og veikjast því síður.

6. Kynlíf getur lækkað blóðþrýstinginn

Sérfræðingar vilja meina að bein tengsl séu á milli lægri blóðþrýstings og þess að stunda reglulega kynlíf. Þá vitið þið það!

7. Kynlíf styrkir grindarbotnsvöðvana

Og hverjum veitir nú ekki af því með hærri aldri? Auk þess hjálpar það þvagblöðrunni, en talið er að t.d. um 30% kvenna þjáist af þvagleka.

8. Kynlíf dregur úr áhættunni á hjartasjúkdómum eins og hjartaáfalli

Gott er að leyfa hjartanu að pumpa aðeins. Rannsóknir hafa sýnt að karlar sem stunda kynlíf að minnsta kosti tvisvar í viku eru í helmingi minni hættu á að deyja úr hjartasjúkdómum en þeir sem stunda kynlíf sjaldan.

9. Og það sem allir vita...

Kynlíf er besta æfing sem til er.

 

 

 

 

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?