Fara í efni

Kvöldnámskeið í fjölskyldumeðferð hefst 28. september

Nýtt námskeið í fjölskyldumeðferð hefst hjá SÁÁ mánudaginn 28. september, klukkan 17.30.
Kvöldnámskeið í fjölskyldumeðferð hefst 28. september

Nýtt námskeið í fjölskyldumeðferð hefst hjá SÁÁ mánudaginn 28. september, klukkan 17.30.

Námskeiðið er kvöldnámskeið sem tekur fjórar vikur og fer fram á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 17:30 til 19:30 í Von, húsi SÁÁ, Efstaleiti 7. Námskeiðisgjald er 8.000 krónur.

Að lokinni Fjölskyldumeðferð geta þátttakendur nýtt sér stuðningshóp sem hittist vikulega í Von, Efstaleiti 7.

Í fjölskyldumeðferð er leitast við að auka þekkingu aðstandenda á fíknisjúkdómnum, einkennum hans og birtingarmyndum og áhrifum hans á alla þá sem búa í návígi við áfengis- og vímuefnasjúkling. Reynt er að aðstoða þátttakendur við að hrinda af stað breytingum til bóta innan fjölskyldunnar.

Fjölskyldumeðferðina annast þrautreyndir ráðgjafar SÁÁ sem hafa áratugalanga reynslu af starfi með aðstandendum og eru löggiltir áfengis- og vímuefnaráðgjafar með starfsleyfi frá heilbrigðisráðherra.

Eftirfarandi erindi eru hluti af Fjölskyldumeðferð:

  • Áfengissýki og önnur vímuefnafíkn
  • Meðvirkni og hvernig hún breytir fjölskyldunni
  • Meðvirkni og hvernig hún breytir einstaklingnum
  • Stuðningur sem gerir ástandið verra
  • Sjálfsvirðing
  • Þróun batans – aðstandandi vs fíkill – (gestir velkomnir)
  • Sameiginlegur bati allra í fjölskyldunni

Síðasta kvöld Fjölskyldumeðferðarinnar er haldin stutt kynning á starfi Al-Anon.

Nánari upplýsingar og skráning í síma 530-7600 eða á netfangið helga@saa.is.

Af vef saa.is