Fara í efni

Hvað er frjókornaofnæmi?

Hvað er frjókornaofnæmi?

Frjókornaofnæmi er eitt algengasta ofnæmið sem kemur fram í nefi og augum. Ástæðan er ofnæmi fyrir grasi, birki eða súrum þ.e. frjókornum frá gróðri. Einkennin koma yfirleitt fram á sama tíma á hverju ári og sumum reynist erfitt að greina milli svokallaðs sumarkvefs og frjóofnæmis. Margir þjást af ítrekuðu kvefi á hverju sumri áður en þeir átta sig á því að um frjókornaofnæmi er að ræða. Reynið því að átta ykkur á því hvort hugsanleg tengsl geti verið milli einkenna og gróðurs í kringum ykkur.

Eitt helsta einkenni frjókornaofnæmis og það margir finna fyrst fyrir, er kláði í augum. Aðeins örfá frjókorn í loftinu geta framkallað augnkláða. Augun verða rauðsprengd og það rennur úr þeim.
Fyrstu einkenni frá nefi eru síendurteknir hnerrar. Önnur einkenni sem miklum óþægindum valda er kláði í nefinu, sem oft veldur svokallaðri ofnæmiskveðju, nefnuddi og grettum sem geta verið býsna spaugilegar. Þá fer að renna stöðugt úr nefinu, sem þýðir að vasaklúturinn er sífellt á lofti. Einnig getur nefið stíflast eða slímhúð þrútnað svo að erfitt verður að draga andann gegnum nefið.

Nauðsynlegt er að hafa í huga að frjókornaofnæmi getur oft valdið astmaeinkennum. 

Hvaða frjókorn valda ofnæmi? 
Þau frjókorn sem algengast er að valdi ofnæmi á Íslandi eru aðallega frjókorn frá ýmsum grastegundum, en einnig frá súrum (t.d. hundasúru), birki og túnfíflum. Frjókorn frá blómstrandi blómum valda sjaldan ofnæmi.

Helsta tímabil frjókornaofnæmis er sumarið, þ.e. júní, júlí og ágúst. Frjókorn frá súrum eru heldur seinna á ferðinni en frjókorna frá grasi, þ.e. frá júlí fram í september.

Magn frjókorna í andrúmsloftinu fer mikið eftir veðri. Þegar rignir er magn frjókorna í lofti lítið, því laus frjókorn setjast á jörðina og blautar plöntur gefa ekki frá sér ný frjókorn. Á hlýjum, þurrum dögum eykst frjókornamagnið, einkum ef vindur blæs.

Veðurstofa Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands standa í sameiningu að mælingu frjókorna í andrúmslofti. Smellið hér til að skoða niðurstöður mælinganna.

Hafa ber í huga að fólk með frjókornaofnæmi getur myndað ofnæmi fyrir vissum fæðutegundum. Upplýsingar um samband fæðu og ofnæmis finnur þú á síðum um fæðuofnæmi og fæðuóþol. 

Heimild : ao.is