AllergyID er nýtt app og einstakt á heimsvísu. Það er þróað af Bjarna Þór Ævarssyni og er sér íslensk uppfinning, fullþróuð og þegar komin í notkun víðs vegar um heiminn bæði í App Store og Google Play. Appið hefur verið kynnt fyrir samstarfshópi EFA um fæðuofnæmi og fékk það þar mjög góðar viðtökur og hrós fyrir þetta lofsverða framtak.
AllergyID er farsímaforrit sem gerir einstaklingum með fæðuofnæmi kleift að búa til persónulegt ofnæmisupplýsingakort á 35 tungumálum — þ.m.t. íslensku, ensku, þýsku, japönsku og arabísku.
Virkni er með þeim hætti að notandinn fyllir ofnæmiskortið sitt út einu sinni, eftir það er hægt að sýna kortið á veitingastöðum, hótelum, sjúkrahúsum, innan skólakerfis eða vinnustaðar eða á ferðalögum. AllergyID heldur utan um persónulegar upplýsingar á öruggan máta og persónuverndarsjónarmið eru í heiðri höfð.
Í tilfellum þar sem að ofnæmisvaldur bætist við eða hættir er einfalt að bæta við eða taka út þannig að kortið veitir alltaf nýjustu upplýsingar. Þetta er mikilvægt þar sem samskiptavandi er ein algengasta ástæða alvarlegra ofnæmisviðbragða utan heimilis. Ofnæmiskort á móðurmáli viðtakandans — á japönsku, arabísku eða þýsku — getur verið munurinn á öryggi og lífshættulegri mistúlkun í ýmiss konar aðstæðum.
Fólk með fæðuofnæmi stendur oft frammi fyrir alvarlegum og oft ósýnilegum hættum þegar það ferðast, borðar úti eða er í óþekktum aðstæðum. AllergyID dregur úr þessari hættu með einfaldri og aðgengilegri tækni — gjaldfrjálst í grunnform og hentar öllum aldurshópum. Eina sem þú þarft að hafa er farsími