Fara í efni

Vestmannaeyjahlaupið 2026

Vestmannaeyjahlaupið, eins og Puffin run eru frábærir hlaupaviðburðir sem haldnir eru í Eyjum á hverju ári. Á meðan Vestmannaeyjahlaupið er hlaupið á malbiki en Puffin utanvegar þá eiga þau þó það sameiginlegt að hlauparar fá að njóta fegurð Eyjanna meðan á hlaupinu stendur. Ekki má gleyma góðum móttökum Eyjamanna, sundlauginni og þess sem hægt er að gera sér til dægrastyttingar í Eyjum.
Enginn svikinn af því að hlaupa í Vestmannaeyjum
Enginn svikinn af því að hlaupa í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 5. september, keppt er í 5 km og 10 km og hefjast báðar vegalengdir kl. 12:30 en rásmark verður við Íþróttamiðstöðina.


Keppnisgögn eru afhent milli kl. 17-19 föstudagskvöldið 4. september í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Þeir sem koma samdægurs geta sótt gögn þangað á laugardeginum frá klukkan 11:00 og fram að ræsingu. Hlaupahaldarar minna hlaupara þó á að mæta tímanlega. Við íþróttamiðstöðina er nóg af bílastæðum og hægt að geyma fatnað þar.

Eitt þátttökugjald 2.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2009 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt en verða að skrá sig í hlaupið til að fá tíma númer með tímatökuflögu.

Veitt eru peningaverðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og þrjár í kvennaflokki í hvorri vegalengd en einnig eru útdráttarverðlaun þar sem allir eiga sömu möguleika á vinningi.

Verðlaun í 10 km

  • 1. sæti 50.000 kr
  • 2. sæti 25.000 kr
  • 3. sæti 15.000 kr
  •  

Verðlaun í 5 km

  • 1. sæti 25.000 kr
  • 2. sæti 15.000 kr
  • 3. sæti 10.000 kr


Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.

Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímalega: herjolfur.is

Frí rútuferð í boði fyrir þá sem koma með 10:45 ferðinni, frá bryggju upp í íþróttahús.

Allar upplýsingar um hlaupið eru inn á vefsíðu hlaupsins vestmannaeyjahlaup.is
Þú getur líka fylgst með á facebook

Nánari upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110 eða eyjaskokk@gmail.com