Fara í efni

Vatnsmýrarhlaupið 6. ágúst

Vatnsmýrarhlaupið verður haldið í 31. sinn fimmtudaginn 6. ágúst 2026. Hlaupið verður í Vatnsmýrinni og Skerjafirði eins og undanfarin ár en keppt í 7 aldursflokkum karla og kvenna.
Vatnsmýrarhlaupið í 31. sinn, 6. ágúst
Vatnsmýrarhlaupið í 31. sinn, 6. ágúst

Vatnsmýrarhlaupið verður haldið í 31. sinn fimmtudaginn 6. ágúst 2026. Hlaupið verður í Vatnsmýrinni og Skerjafirði eins og undanfarin ár. Upphaf og endir verður í nágrenni Háskóla Íslands og forskráning fer fram á www.hlaup.is auk þess sem hægt verður að skrá sig á Háskólatorgi á hlaupadag. Veitt verða verðlaun fyrir sjö aldursflokka og verður notast við flögutímatöku.

Tímasetning

Hefst kl. 20 við Háskóla Íslands.

 

Vegalengd

5 km með flögutímatöku. Hlaupaleiðin er löglega mæld af FRÍ.

 

Flokkaskipting

Bæði kyn

  • 14 ára og yngri
  • 15-19 ára
  • 20-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60 - 69 ára
  • 70 ára og eldri

Skráning, verð og afhending númera

Skráning fer fram á hlaup.is til kl. 22:00 miðvikudaginn 5. ágúst en einnig er hægt að skrá sig milli kl. 17-19:30 á Háskólatorgi á hlaupdag. Skráningargjald er 2.500 kr. Hægt er að óska eftir þátttökumedalíu þar til miðnættis þriðjudaginn 4. ágúst og er verðið þá 2.900 kr. Athugið að ekki verður posi á staðnum. Afhending númera verður milli kl. 17-19:45 á Háskólatorgi á hlaupdag.

Verðlaun

Þátttökumedalíur eru fyrir alla 14 ára og yngri og aðra sem óska eftir því. Vegleg útdráttarverðlaun eru og verðlaun fyrir 1. sæti í hverjum flokki.

Hlaupaleiðin

Hlaupið er í nágrenni Vatnsmýrar og Skerjafjarðar. Hlaupaleiðin er tiltölulega flöt en hana má sjá inni á skráningarforminu á Hlaup.is

 

Skilmálar

Keppendur taka þátt í Vantsmýrarhlaupinu á eigin ábyrgð. Framkvæmdaaðilar geta á engan hátt verið ábyrgir vegna skaða sem keppendur hugsanlega verða fyrir eða valda öðrum á meðan á þátttöku stendur. Hlauparar bera ábyrgð á og meta heilsu sína og getu til þátttöku í hlaupinu. Framkvæmdaaðilar geta ekki verið ábyrgir fyrir atvikum í tengslum við hlaupið en brautarverðir aðstoða við öryggi hlaupara. Mælst er til þess að hlauparar hlaupi ekki með heyrnartól / tónlist í eyrum, öryggis þeirra vegna. Með skráningu í þennan viðburð staðfestir þátttakandi skilning á þessu og samþykkir skilmála hlaupsins.

 

Annað

Brautarvarsla er á öllum helstu götuhornum, einnig verður hjólreiðamaður á undan fyrstu mönnum. Merkingar verða á kílómeters fresti. Hið vinsæla ávaxtahlaðborð verður á sínum stað auk útdráttarverðlauna.

Nánari upplýsingar: Laufey Sigrún Haraldsdóttir, laufeys@gmail.com

https://hlaup.is/vidburdir/vatnsmyrarhlaupid-06-08-2026/skraningar-i-vatnsmyrarhlaupid-2026/#/1