Fara í efni

Steinþór kann besta sparnaðarráð í heimi: Safnaði 20 milljónum

Ís­firðingurinn Stein­þór Braga­son á­kvað 17 ára gamall að drekka hvorki né reykja en leggja þess í stað inn á reikning and­virði þess sem vinir hans eyddu í á­fengi og tóbak. Á 20 árum safnaði hann með þessum hætti rétt tæpum 20 milljónum. Þetta kemur fram í Gömlu fréttinni hér á Heilsutorg en Steinþór tjáði sig upphaflega við BB.is

„Vinir mínir reyktu sumir og fóru flestir með eina til tvær flöskur á helgi. Ég á­kvað að prófa að leggja fyrir þá upp­hæð sem þeir eyddu í djammið,“

Stein­þór er í við­tali við Bæjarins besta. Þar segist hann alltaf hafa verið ráð­deildar­samur, hafi fengið þann eigin­leika með móður­mjólkinni enda móðir hans skipu­lögð. En hvað gerði hann við peningana sem hann safnaði með þessum hætti?

Þetta var nokkurs konar leik­tækja­sjóður en fyrir peningana keypti ég mér tvo bíla, fjór­hjól, einn sport­bíl og svo var þetta út­borgun í húsinu okkar.

Stein­þór fylgdist með verð­lagi á vodka og sígarettum til að vita hvað hann ætti að spara. Það voru einu skipin sem hann fór í ríkið.

„Árið 2007 keypti ég mér Dod­ge Ram fyrir þessa peninga. Þegar ég kom að sunnan var ball í Ögri í Ísa­fjarðar­djúpi. Ég á­kvað að líta við. Þegar ég kom út úr bílnum vatt sér að mér maður með sígarettu í annarri og flösku í hinni og kallaði:

„Hva!, ert þú ein­hver út­rásar­víkingur? Eitt­hvað hefur þessi kostað.“

Ég svaraði honum að bíllinn hefði kostað einn pakka af sígarettum og eina flösku á helgi í fjögur ár. Hann sagði ekki mikið eftir það,“ rifjar Stein­þór upp hlæjandi í sam­tali við BB.is