Fara í efni

Spínat og grænkáls smoothie

Þessi drykkur er mjög frískandi og bragðgóður og gott að byrja daginn á einum slíkum.
Drykkurinn er stútfullur af vítamínum
Drykkurinn er stútfullur af vítamínum

4,67 gr prótein, 47,9 gr kolvetni, 3,25 gr fita (238 Kcal)

Þessi drykkur er mjög frískandi og bragðgóður og gott að byrja daginn á einum slíkum. Ekki láta innihaldið hræða ykkur, drykkurinn mun án efa koma ykkur á óvart en bananinn og peran gefa mjúkt og sætt bragð auk þess sem kóríanderinn gefur ferskt og örlítið kryddað sítrus bragð. Drykkurinn er stútfullur af vítamínum og andoxunarefnum og ætti að gefa ykkur gott start inn í daginn.

1 vel þroskaður banani, ekki verra ef hann er frosinn
1 þroskuð pera
Góða lúka af spínati, ca. 30 gr
3-4 stilkar af grænkáli, ca. 30 gr
2 dl möndlumjók (200 ml)

Kóríander eftir smekk, ég set alveg slatta enda gott og frískandi sítrus bragð af kryddjurtinni.

Allt sett í blandarann og blandað þar til silkimjúkt og fallegt. Ég mæli síðan með því að drykkurinn sé settur í fallegt glas og drukkinn í rólegheitunum.