Fara í efni

Skref fyrir skref

Það getur verið hvetjandi að nota skrefamæli eða annars konar mælitæki til að auka daglega hreyfingu. Margir nota slík tæki , stafræn mælitæki eða einfalda skrefamæla, sem aðhald og hvatningu til þess að hreyfa sig.
Skref fyrir skref

Það getur verið hvetjandi að nota skrefamæli eða annars konar mælitæki  til að auka daglega hreyfingu. Margir nota slík tæki , stafræn mælitæki eða einfalda skrefamæla, sem aðhald og hvatningu til þess að hreyfa sig.  

Oft er miðað við u.þ.b. 10.000 skref á dag, en það er  í samræmi við heiti fyrsta  skrefamælisins á markaðinum, „Manpo Meter“, sem þýðir einfaldlega 10.000 skref!

Þessi skrefafjöldi er einungis viðmiðun og metnaðarfullt markmið fyrir marga, en samkvæmt ráðleggingum Landlæknisembættisins er 30 mínútna hreyfing  á dag talin æskileg fyrir fullorðna sem þýðir á milli 7000-8000 skref.

Dagleg hreyfing miðast við einstaklingsbundið líkamsástand, en mikilvægt er að fara rólega af stað og auka síðan við sig eftir því sem úthald batnar. Þeir sem hreyfa sig lítið verða oft undrandi að sjá, hvað þeir taka í raun fá skref yfir daginn, þegar skrefamælir er hafður með í för.  Hann getur virkað hvetjandi til þess að uppfylla ákveðin markmið þannig að fólk bæti fremur við sig aukahring eða vegalengd til þess að ná tilteknum, daglegum skrefafjölda.

Ákveðinn skrefafjöldi  hefur vitaskuld dýpri skírskotun en til talna á skrefamæli. Á bak við tölurnar er hreyfing, sem  bætir starfsemi hjarta og lungna og styrkir stoðkerfið, vöðva og bein. Tölurnar eru einnig til marks útiveru í fersku lofti, sem eykur vellíðan og gefur líkamanum D-vítamín frá útfjólubláum geislum sólar.

Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi til þess að hreyfa sig og auka skrefafjölda á degi hverjum, þótt langar göngur séu e.t.v. ekki í boði t.d. að:

  • ganga eftir matinn
  • standa upp og hreyfa sig heima við eða í vinnunni
  • sleppa því að horfa á sjónvarpið í hálftíma og hreyfa sig í staðinn
  • nota stiga í stað lyftu sé þess kostur
  • leggja bílnum lengra frá búðinni eða vinnustaðnum
  • ganga í stað þess að nota bílinn sé þess kostur. Ef almenningssamgöngur eru notaðar, þá er hægt að fara úr vagninum fyrr en venjulega og ganga seinasta spölinn heim.

Ef skrefamælir er eitthvað fyrir þig, þá skaltu kaupa hann til þess að nota reglulega. Hann safnar ekki skrefum í skúffunni!

Grein af vef beinverndar.