Skráning: Ármannshlaup 2019
											Ármannshlaupið er 10 km götuhlaup. Hlaupið hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir flata braut þar sem margir hafa náð sínum besta tíma.
 Tímasetning og staðsetning
 Miðvikudaginn 3. júlí 2019 kl. 20:00, ræsing og endamark er í Vatnagörðum við Holtagarða.  
 
 Vegalengdir
 10 km hlaup með flögutímatöku. 
 
 Hlaupaleið
 Hlaupaleið er nokkuð frábrugðin því sem verið hefur undanfarin ár. Að þessu sinni verður ræst í Vatnagörðum milli Avis og Holtagarða. Þaðan er hlaupið á göngustíg meðfram Sæbrautinni út undir Hörpu. Lykkja er tekin á báðum leiðum við listasafn Sigurjóns Ólafssonar. Smellið hér til að skoða flata og hraða 10 km braut Ármannshlaupsins 2019. 

 
 Skráning og þátttökugjald
 Skráningu á vefnum líkur 3. júlí klukkan 19:30 en 19:45 á staðnum. Þátttökugjald er 2500 krónur en hækkar á hlaupadegi í 3000 krónur. Klukkan 17:00 geta keppendur sótt keppnisgögn og skráð sig í Holtagörðum. 
 
 Verðlaun
- Verðlaunapeningar fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna
 - Sigurvegarar í hverjum aldursflokki karla og kvenna hljóta verðlaun.
 - Þátttökupeningar
 - Útdráttarverðlaun
 
 Aldursflokkar
 18 ára og yngri
- 19-29 ára
 - 30-39 ára
 - 40-49 ára
 - 50-59 ára
 - 60 ára og eldri
 
Viðburður haldinn af:
 Frjálsíþróttadeild Ármanns
 kt. 491283-0339 
 Engjavegi 7
 104 Reykjavík
 Símanúmer: +354 863 9980 (Örvar Ólafsson)
 orvar@frjalsar.is

