Fara í efni

Skráðu þig fyrir 2.júlí í Reykjavíkurmaraþonið til að tryggja þér lægra þátttökugjald

Það styttist óðum í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2014. Hlaupið fer fram í 31.sinn laugardaginn 23.ágúst.
Reykjavíkurmaraþon
Reykjavíkurmaraþon

Það styttist óðum í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2014. Hlaupið fer fram í 31.sinn laugardaginn 23.ágúst.

Forskráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hófst í janúar og verður opin til kl.13:00 fimmtudaginn 21.ágúst. Nú eru á fimmta þúsund hlauparar skráðir til þátttöku. Hlauparar eru hvattir til að skrá sig sem fyrst og fá lægra þátttökugjald. Næsta hækkun á gjaldi verður á miðnætti þriðjudaginn 1.júlí.

Allir sem skrá sig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fyrir 2.júlí tryggja sér ekki bara lægra þátttökugjald heldur eiga þeir möguleika á að vinna skó frá Under Armour sem er nýr samstarfsaðili Reykjavíkurmaraþons.

Dregin verða út tvö pör af skóm miðvikudaginn 2.júlí. 

Smelltu hér til að skrá þig í hlaupið.